Eignarhaldsfélag í eigu Finns Ingólfssonar og fleiri fjárfesta hefur keypt allt hlutafé í fyrirtækjunum Frumherja hf. og Frumorku ehf. en seljandi er Óskar Eyjólfsson. Þetta kemur fram í tilkynningu en kaupverðið kemur þar ekki fram.

Óskar hefur átt félagið frá árinu 2006 en fram að því var það skráð í Kauphöll Íslands.

Mynduð hefur verið ný stjórn og er Jafet S. Ólafsson stjórnarformaður. .

Eftir áreiðanleikakönnun kynnti Glitnir Frumherja og Frumorku fyrir fjórum áhugasömum kaupendum. Þrjú tilboð bárust og voru tveir aðilar valdir til að halda áfram.

Frumherji rekur meðal annars bifreiðaskoðun og skoðun skipa og rafmagns. Þá sér fyrirtækið um öll ökupróf á landinu og sinnir notkunarmælingum á raforku, heitu vatni og köldu vatni fyrir orkuveitur. Alls starfa um 100 manns hjá félaginu.

Finnur Ingólfsson er stjórnarformaður Icelandair Group. Hann var áður forstjóri VÍS, bankastjóri Seðlabankans 2000-2002 og iðnaðar- og viðskiptaráðherra 1995-1999.

Glitnir var ráðgjafi seljenda.