FS7 ehf., einkahlutafélag í eigu Finns Ingólfssonar, stjórnarformanns Icelandair Group Holding hf., hefur keypt fjórðungs hlut í Langflugi ehf. af Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingar hf., segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Eina eign Langflugs ehf. er 32% eignarhlutur í Icelandair Group Holding hf. Finnur Ingólfsson er jafnframt stjórnarformaður Langflugs ehf. Hinn fjárhagslega tengdi aðili við Finn Ingólfsson fruminnherja er eigandi að 320.000.000 hlutum í Icelandair Group Holding hf.