Haldinn hefur verið hluthafafundur í Icelandair Group og ný stjórn félagsins kjörin, segir í tilkynningu. Stjórnina skipa: Finnur Ingólfsson, formaður, Ómar Benediksson, varaformaður, Einar Sveinsson, Hermann Guðmundsson, Helgi S. Guðmundsson, Jóhann Magnússon og Martha Eiríksdóttir. Varamenn eru þeir Guðsteinn Einarsson og Jón Benediktsson.

Þrír hópar fjárfesta festu kaup á 50,5% hlut í Icelandair Group og var tilkynnt um það þann 16. október. Hóparnir eru: Langflug ehf (að mestu í eigu Samvinnutrygginga hf.) með 32% hlut, Naust ehf (að mestu í eigu BNT hf.) með 11,1% hlut og Blue-Sky Transport Holding (að mestu í eigu Ómars Benediktssonar) með 7,4% hlut.