Stjórn Nýja Kaupþings hefur ákveðið að framlengja ráðningarsamning Finns Sveinbjörnssonar, bankastjóra bankans, til loka þessa árs.

Jafnframt hefur stjórn bankans ákveðið að auglýsa starf bankastjóra undir lok ársins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýja Kaupþingi.

Finnur var ráðinn til Nýja Kaupþing í október síðastliðnum, en um tímabundna ráðningu var að ræða.

Í tilkynningunni kemur fram að ný stjórn bankans var skipuð í nóvember og hefur hún unnið skipulega með Finni að því að byggja upp hinn nýja banka.

„Finnur starfaði ekki hjá “gamla bankanum„ og ráðning hans markaði því í sjálfu sér ákveðin skil nútíðar og fortíðar í forystu fyrirtækisins,“ segir í tilkynningu bankans.

„Þessi skil voru síðan skerpt enn frekar með breytingum í stjórnendateymi bankans um síðustu áramót. Stjórn Nýja Kaupþings banka telur það gagnast hagsmunum bankans best að framlengja ráðningarsamninginn við Finn og lýsa yfir fullum stuðningi við hann og hið nýja stjórnendateymi í brýnum og vandasömum verkefnum sem unnið er að til að festa starfsemi bankans í sessi og skapa honum trúnað og traust í samfélaginu.“