Finnur Sveinsson hefur verið ráðinn til Landsbankans í stöðu sérfræðings í samfélagslegri ábyrgð.

Staða sérfræðings í samfélagslegri ábyrgð er ný í Landsbankanum og mun starfsmaðurinn leiða stefnumótun og starf bankans í samfélagslegri ábyrgð og njóta til þess liðsinnis yfirstjórnar og hóps starfsmanna.  Finnur hefur störf í janúar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum en yfir 90 manns sóttu um starfið þegar það var auglýst um miðjan október.

Finnur er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og starfaði í Íslandsbanka að loknu námi en hélt svo til Svíþjóðar þar sem hann lauk námi í umhverfisfræði. Að því loknu hóf hann störf sem ráðgjafi og hefur unnið við ráðgjöf á sviði umhverfismála frá árinu 1998 í í Svíþjóð, en þar rak hann fyrirtæki sem hét NOMIK AB.  Frá miðju ári 2007 hefur Finnur rekið FSV Ráðgjöf hér á landi.

Finnur hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði samfélagslegrar ábyrgðar, til dæmis umhverfisvottunar vöru og þjónustu í samræmi við norræna umhverfismerkið Svaninn, ISO 14001 vottun fyrirtækja, innleiðing vistvænna innkaupa opinberra aðila á Íslandi, verkefnastjórn sjálfbærniverkefna Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar á austur- og norðurlandi auk viðskiptaþróunarverkefna með áherslu á sjálfbærni.

Frá miðju ári  2006 hefur Finnur starfað mikið fyrir Alcoa Fjarðaál (AF)  að margvíslegum verkefnum.  Hann hefur komið að og leitt á vissum sviðum uppbyggingu umhverfis- og samfélagsmála hjá AF.  Þessu til viðbótar sá hann um samningaviðræður við marga birgja Fjarðaáls, innanlands og erlendis og byggði upp viðskiptasambönd við þá.