Heildarafli íslenskra skipa í dróst saman um 17,4% á milli ára í nóvember síðastliðnum. Það sem af er árinu hefur hann aykist um 12,1%, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar . Aflinn nam 90.558 tonum í nóvember samanborið við 103.976 tonn í sama mánuði í fyrra.

Fram kemur í upplýsingum Hagstofunnar að botnfiskafli dróst saman um rúm 6.400 tonn á milli ára og var afli uppsjávartegunda rúm 50.800 tonn í síðasta mánuði samanborið við 56.900 tonn í fyrra.