Árið 2014 var heildarafli íslenskra fiskiskipa 1.080 þúsund tonn sem er samdráttur um 21% samanborið við árið 2013. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar .

Í desember var heildaraflinn rúm 47 þúsund tonn en það er 5,5% minna en í sama mánuði ári fyrr.

Magnvísitala á föstu verðlagi er um 24,1% lægri miðað við desember 2013. Á árinu 2014 hefur magnvísitalan lækkað um 12,5% samanborið við árið 2013.