Árið 2016 nam heildarafli íslenskra skipa 1.069,6 þúsund tonnum en það er minnkun um 247 þúsund tonn frá árinu áður.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en þar segir að samdráttinn milli áranna megi nær eingöngu rekja til þess að loðnuaflinn fór úr 353 þúsund tonnum niður í 101 þúsund tonn milli áranna.

Í uppsjávarafla nam samdrátturinn 32% milli ára, en alls veiddust tæp 576 þúsund tonn af uppsjávartegundum.

Aukning var hins vegar í afla botnfisktegunda, þó hann væri ekki nema 4% á milli áranna. Nam hann 457 þúsund tonnum, en þar af var þorskaflinn uppistaðan eða tæp 264 þúsund tonn. Það er 8% aukning frá árinu 2015.

„Flatfiskaflinn var svipaður á milli ára og var tæp 24 þúsund tonnum á síðasta ári. Afli skel- og krabbadýra nam 12,7 þúsund tonnum sem er jafngildir 26% aukningu miðað við árið 2015,“ segir í frétt Hagstofunnar.

„Í desembermánuði var fiskaflinn rúm 59 þúsund tonn sem er 20% meiri afli en í desember 2015.

Aukning uppsjávarafla

Aukið aflamagn í desember skýrist af auknum uppsjávarafla, en afli uppsjávartegunda, kolmunna og síld, var 15 þúsund tonnum meiri en í desember 2015.

Samdráttur varð hins vegar í öðrum aflategundum, botnfiskafli dróst saman um 14%, flatfiskafli um 41% og skel- og krabbadýraafli um 28%.

Þrátt fyrir aukið aflamagn í desember má gera ráð fyrir að verðmæti aflans í desember hafi dregist saman um 5,5% sem skýrist af aflasamdrætti verðmætari tegunda.“