Heildarafli íslenskra fiskiskipa var tæplega 95 þúsund tonn í júlí 2015, sem er rúmlega 3.500 tonnum meira en í júlí 2014. Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar .

Heildarlöndun á botnfiski jókst um 8,9% samanborið við júlí 2014. Flatfiskafli jókst um rúm 1.500 tonn, og er það mest vegna aukins grálúðuafla, en hann meira en tvöfaldaðist frá júlí 2014.

Uppsjávarafli var svipaður og í sama mánuði fyrir ári. Humarafli var 18% minni en í júlí 2014 en rækjuafli jókst um 22%.

Metið á föstu verði minnkaði aflinn í júlí 2015 um 4,2% miðað við júlí 2014. Á síðustu tólf mánuðum hefur heildaraflamagn aukist um tæp 251 þúsund tonn, sem er 23,3% meira magn en á sama tímabili árið áður.