Heildarafli íslenskra fiskiskipa var rúmlega 99 þúsund tonn í september 2014, 14,8% minni en í sama mánuði árið áður, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands .

Á 12 mánaða tímabili var heildaraflinn rúmlega 1.063 tonn og minnkaði um 22,9% miðað við fyrra 12 mánaða tímabil. Magnvísitala á föstu verðlagi er um 20,6% lægri miðað við september í fyrra, en á 12 mánaða tímabilinu október 2013 til september 2014 hefur magnvísitalan lækkað um 8,9% miðað við sama tímabil árið áður.