Heildarafli íslenskra fiskiskipa var tæp 192 þúsund tonn í mars 2015, sem er nærri 96 þúsund tonnum meiri afli en í mars 2014. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Mestu munar um aukinn loðnuafla en 128 þúsund tonn veiddust af loðnu í mars samanborið við 36 þúsund tonn í mars 2014. Botnfiskafli jókst um þrjú þúsund tonn í marsmánuði eða um 6,5% miðað við sama mánuð árið 2014.

Aflinn í mars, metinn á föstu verði, var 32,9% meiri en í marsmánuði 2014. Á síðustu 12 mánuðum hefur aflinn minnkað um 2,6%, sé hann metinn á föstu verði.