Ferskur fiskur heim að dyrum er þjónusta sem fyrirtækið Fiskikassinn býður upp á. Á heimasíðu fyrirtækisins er hægt að velja sér nokkrar fisktegundir sem koma í 5 kg og 10 kg kössum heim að dyrum.

Línuveiddur fiskurinn kemur ferskur frá Fiskmarkaðnum og er afhentur sama dag og hann er verkaður.

Gabríel Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Fiskikassans, byrjaði á ganga í hús og selja ýsuflök til þess að kynna þjónustuna.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.