Útlit er fyrir að fiskeldi tvöfaldist á næstu tveimur árum, að því er fram kemur í frétt frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu á vef Stjórnarráðsins. Útflutningsverðmæti fiskeldis gæti þá orðið um 40 milljarðar króna árið 2021 eða sem nemur hátt í 3% af heildarútflutningi. Á þessu ári reiknar ráðuneytið með að útflutningsverðmæti fiskeldis verði líklega hátt í 20 milljarðar króna sem nemur ríflega 1% af heildarútflutningi.

Ekki hefur ríkt einhugur hér á landi um fiskeldi og hefur uppbygging atvinnugreinarinnar sætt mikilli gagnrýni, ekki síst frá hagsmunasamtökum laxveiðimanna og veiðifélögum. Engu að síður hafa framleiðsluheimildir í fiskeldi nær tvöfaldast á þessu ári og eru nú um 85 þúsund tonn miðað við útgefin starfsleyfi Umhverfisstofnunar. Samkvæmt frétt ráðuneytisins tekur um tvö ár fyrir rekstraraðila að fullnýta þær framleiðsluheimildir sem nú liggja fyrir.

„Fiskeldi hefur vaxið mikið á undanförnum árum og verði vöxtur á næstu árum, einkum í laxeldi, jafnmikill og útlit er fyrir mun hann hafa teljandi áhrif í þjóðhagslegu samhengi. Það sem af er ári er vöxtur í útflutningsverðmæti milli ára um 60%. Útflutningsverðmæti fiskeldis verður líklega hátt í 20 ma.kr í ár eða sem nemur ríflega 1% af heildarútflutningi,“ segir í frétt Fjármálaráðuneytisins.

„Mestallt fiskeldi hér á landi er annars vegar á Vestfjörðum og hins vegar á Austfjörðum og skiptist tiltölulega jafnt milli þessara tveggja landsvæða.

Gangi áform eftir eru líkur á að samanlögð framleiðsla tvöfaldist til ársins 2021. Miðað við óbreytt afurðaverð þýðir þetta að útflutningsverðmæti fiskeldis gæti orðið um 40 ma.kr. árið 2021. Það nemur hátt í 3% af heildarútflutningi og slagar upp í verðmæti alls uppsjávarfisks í fyrra. Spáin er vitanlega háð óvissu um gang mála hjá einstökum framleiðendum.

Miðað við þær starfsleyfisumsóknir sem eru til skoðunar mun vöxtur fiskeldis líklega halda áfram eftir árið 2021. Það er þó takmarkað hversu mikinn fisk er hægt að framleiða í einstökum fjörðum og víða eru samanlagðar heimildir að nálgast burðarþol fjarðanna. Þrátt fyrir það er ekki útilokað að framleiðsluverðmætið geti vaxið um nokkra tugi milljarða til viðbótar á árunum eftir 2021.“