Eyþór Björnsson fiskistofustjóri og Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri, eru á meðal umsækjenda um starf forstjóra Samgöngustofu. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá fyrr í dag er Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, einnig á meðal umsækjenda.

Alls bárust 24 umsóknir um starf forstjóra Samgöngustofu sem auglýst var laust til umsóknar 6. júní síðastliðinn. Umsóknarfrestur var til 22. júní. Á vef innanríkisráðuneytisins kemur fram að hæfni umsækjanda verður metin af þriggja manna nefnd sem innanríkisráðherra skipar.

Hér má sjá lista yfir umsækjendur.