Rekstrarfélag veitingastaðarins Fiskmarkaðarins hagnaðist um rúmar 48 milljónir á síðasta ári samkvæmt ársreikningi félagsins. Hagnaður ársins 2012 nam tæpum 35 milljónum króna og því er um rúma 38% hagnaðaraukningu að ræða milli ára.

Eignir félagsins námu í lok ársins tæpum 158 milljónum króna, bókfært eigið fé tæpum 94 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 59%.

Eigendur Fiskmarkaðarins eru þau Hrefna Rósa Sætran og Ágúst Reynisson. Lagt var til að á þessu ári yrði arður greiddur til hluthafa sem næmi 34 milljónum króna.