Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur lækkað lánshæfiseinkunnir Kaupþings [ KAUP ] og horfur fyrir langtímaeinkunn eru neikvæðar, að því er fram kemur í tilkynningu bankans. Langtíma einkunn var lækkuð um eitt þrep úr A í A- og skammtímaeinkunn úr F1 í F2. Óháð einkunn B/C, stuðningseinkunn 2 og stuðningeinkunnargólf BBB eru óbreyttar.

Fitch segir m.a. í tilkynningu sinni: „Lánshæfismat Kaupþings, sem er stutt af landfræðilegri áhættudreifingu í starfsemi bankans ásamt góðum árangri í að fella erlend dótturfélög að starfsemi hans, tekur einnig mið af væntingum um verri horfur á helstu mörkuðum bankans það er á Íslandi og Bretlandi. Sterk lausafjárstaða bankans og opnun innlánareikninga í fjölmörgum löndum styðja við áhættudreifingu í fjármögnun hans.“