Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings Services hefur lækkað lánshæfismatseinkunn Glitnis úr BBB í CCC til langs tíma.

Vegna þessa lækkaði skammtíma einkunn bankans úr B í D.

Stuðnings einkunn (e. support rating) fer úr 4 í 5. Einkunnir fyrir víkjandi lán (e. subordinated debt og hybrid capital instruments) eru færðar úr CCC+ í C annars vegar en staðfestar í C hins vegar.

Sjálfstæð einkunn bankans var staðfest sem F.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Glitni.