Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur tilkynnt að það hafi staðfest lánshæfiseinkunnir Kaupþings banka [ KAUP ], það er langtímaeinkunn A, skammtímaeinkunn F1, óháð einkunn B/C, stuðningseinkunn 2, stuðningseinkunnargólf BBB. Fitch hefur breytt horfum fyrir langtímaeinkunn úr neikvæðum í stöðugar.

Fitch segir m.a. í tilkynningu sinni: "Matið á Kaupþingi tekur tillit til sterkrar stöðu á íslenskum markaði, betri dreifingu hagnaðar og eigna, gæði eigna og viðunandi eiginfjárhlutfalls og arðsemi."