Matsfyrirtækið Fitch breytir ekki lánshæfismati Ríkissjóðs Íslands, en það er nú BBB- eftir að hafa lækkað 5. janúar 2010. Í nýju áliti sem gefið er út í kjölfar Icesave-kosninganna kemur fram að niðurstaða kosninga geti tafið fyrir hækkun í fjárfestingaflokk í nánustu framtíð.

Greint er frá áliti Fitch á vef Seðlabanka Íslands, en núverandi einkunn fellur undir að vera svokallaður ruslflokkur.

Á vef Seðlabanka Íslands segir:

„Matsfyrirtækið Fitch birti í dag álit í kjölfar niðurstöðu atkvæðagreiðslu um Icesave-samninginn sem haldin var laugardaginn 9. apríl síðastliðinn. Álitið felur ekki í sér breytingu á lánshæfismati Ríkissjóðs Íslands en fram kemur að niðurstaðan geti tafið fyrir hækkun í fjárfestingaflokk í nánustu framtíð. Fitch lækkaði langtímaeinkunn ríkissjóðs í erlendri mynt í BB+ með neikvæðum horfum úr BBB- 5. janúar 2010 í framhaldi af ákvörðun um að vísa fyrri Icesave samningi til þjóðaratkvæðagreiðslu.“

Hér má sjá álitið í heild sinni: Álit Fitch 11.4.2011 (pdf)