Fitch Ratings tilkynnti í gær um eftirfarandi breytingar á lánshæfiseinkunnum Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf:

Langtímaeinkunn (IDR) lækkuð í B úr BB-. Horfum breytt í neikvæðar frá í athugun.

Skammtímaeinkunn: 'B'. Horfum breytt í neikvæðar frá í athugun.

Stuðningseinkunn: staðfest sem '5'.

Stuðningseinkunnargólf: breytt í 'Ekkert gólf'.

Óháð einkunn: lækkuð í 'D/E' úr D; Horfum breytt í neikvæðar frá í athugun.

Almenn lán: lækkuð í B úr BB-; Horfum breytt í neikvæðar frá í athugun.

Víkjandi lán: lækkuð í CCC+ úr 'B'; Horfum breytt í neikvæðar frá í athugun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straumi.