Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest A lánshæfismat Glitnis, skammtímaeinkunin er F1, óháð einkun er B/C og stuðningseinkun er 2, en staðfestingin er gerð í kjölfar tilkynningar Glitnis um kaup á hlut í finnska eignastýringarfyrirtækinu FIM, segir í frétt Dow Jones.

Í tilkynningu Fitch segir að FIM henti vel inn áætlanir Glitnis um uppbyggingu á Norðurlöndunum, það muni auka við núverandi starfsemi Glitnis á sviði eignastýringa og á fjármálamörkuðum.