Fitch Ratings staðfesti í dag lánshæfiseinkunnir Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka hf. Í tilkynningu Fitch segir að langtímaeinkunnin BBB- helst óbreytt, skammtímaeinkun er F3, óháð einkunn C/D, og stuðningseinkunn 3. Horfur lánshæfiseinkunnanna eru stöðugar.