Fitch staðfestir lánshæfismat Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka BBB- í kjölfar tilkynningar um nýjan forstjóra og breytingar í hluthafahópi segir í tilkynningu félagsins þar um til Kauphallarinnar.

Fitch Ratings staðfesti í dag eftirtaldar lánshæfiseinkunnir Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka hf.: Langtímaeinkunn ?BBB-', skammtímaeinkunn ?F3', óháð einkunn ?C/D', og stuðningseinkunn ?3'. Horfur lánshæfiseinkunnanna eru stöðugar.