Fjalar Kristjánsson hefur verið ráðinn Technical Director hjá Alvogen og mun m.a. taka þátt í uppbyggingu þróunarstarfs félagsins.  Hann lauk doktorsprófi í lyfjafræði frá University of Kansas árið 1987 og hefur um árabil leitt uppbyggingu lyfjaverksmiðja og lyfjaprófanna víða um heim.

Fjalar starfaði áður hjá lyfjafyrirtækjunum Delta og síðar Actavis á Möltu, Indlandi og í Búlgaríu.