Fjáraukalög voru samþykkt á Alþingi í dag. 43 þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu, 17 þingmenn sátu hjá en þrír voru fjarstaddir.

Þær breytingar voru meðal annars gerðar á frumvarpinu að samþykkt var að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót en kostnaðurinn vegna þessa er um 250 milljónir króna.