Alcoa Fjarðarál á Reyðarfirði hefur hafið undirbúning að því að draga úr framleiðslu og verður slökkt á allt að 10% af þeim 336 kerum sem fyrirtækið starfrækir. Ástæða þessa er fyrirhuguð skerðing Landsvirkjunar á umframorku vegna lágrar vatnsstöðu í Blöndulóni og Þórisvatni. Áætlað er að orkuskerðingin í ár standi frá 20. febrúar til aprílloka nema jákvæðar breytingar verði á vatnsmagni uppistöðulónanna.

Í tilkynningu frá Fjarðaráli kemur fram að þetta sé annað árið í röð sem þetta komi fyrir .

„Í ljósi boðaðrar orkuskerðingar, sem nemur 58MW, hefur Fjarðaál nú hafið undirbúning að því að draga úr framleiðslu og verður í framhaldinu slökkt á allt að 10 prósentum af þeim 336 kerum sem fyrirtækið starfrækir. Alcoa Fjarðaál áætlar að alls muni framleiðslutap fyrirtækisins nema tæpum 9 þúsund tonnum á tímabilinu sem skerðingin mun standa. Aðgerðirnar munu ekki hafa nein áhrif á vöruflæði til viðskiptavina Alcoa,“ að því er segir í tilkynningu Alcoa Fjarðaráls.