Hreinar fjáreignir heimila jukust um 17% milli ára og námu 2.638 milljarða króna í árslok 2014 samkvæmt nýuppfærðum tölum Hagstofu Íslands. Það jafngildir 131,7% af vergri landsframleiðslu. Fjáreignir heimila námu 4.562 ma kr. í árslok 2014, en stærstur hluti þeirra, eða 76%, eru lífeyrisréttindi. Fjárskuldbindingar heimila voru 1.962 milljarða króna á sama tíma.

Fjáreignir fyrirtækja annarra en fjármálafyrirtækja aukast

Fjáreignir fyrirtækja annarra en fjármálafyrirtækja jukust um 5% að nafnvirði á milli ára og stóðu í 4.777 milljörðum króna í árslok 2014. Á sama tíma námu fjárskuldbindingar 7.862 milljörðum króna, sem er 4,7% aukning á milli ára. Hreinar fjáreignir fyrirtækja annarra en fjármálafyrirtækja voru neikvæðar um 3.454 milljarða króna, eða 172% af VLF, í lok árs 2014.

Hreinar fjáreignir fjármálafyrirtækja voru neikvæðar um 3.573 milljarða króna í árslok 2014 séu fjármálafyrirtæki í slitameðferð meðtalin. Sé hinsvegar litið framhjá fjármálafyrirtækjum í slitameðferð voru hreinar fjáreignir fjármálafyrirtækja jákvæðar um tæpan 41 milljarð króna í lok árs 2014.

Fjáreignir hins opinbera neikvæðar

Hreinar fjáreignir hins opinbera og undirgeira þess voru neikvæðar um 968 milljarða króna í árslok 2014 og höfðu skuldir umfram eignir aukist um 2,9% frá fyrra ári.

Heildarfjáreignir innlendra efnahagsgeira námu 24.331 milljarði króna í árslok 2014 en fjárskuldbindingar voru 29.642 milljarðar króna á sama tíma. Fjáreignir erlendra aðila á Íslandi námu 9.520 milljörðum  króna en fjárskuldbindingar við innlenda aðila voru 4.200 milljörðum króna í lok árs 2014. Hreinar fjáreignir erlendra aðila á Íslandi voru 5.320 milljarðar króna í árslok 2014 og höfðu rýrnað um 8% frá fyrra ári.