„Það er áhyggjuefni að í dag er litið á útgjöld til heilbrigðismála sem kostnað. Við tölum um að fjárfesta í menntakerfinu en það er kostnaður sem fylgir heilbrigðiskerfinu. Það eru ekki mörg ár síðan sagt var að bókvitið verði ekki í askana látið. Menntun var talin ónothæf. Ef við erum með heilbrigða þjóð þá getum við unnið lengur, framlegðin er meiri og lífsgæðin einnig,“ segir Margrét Guð- mundsdóttir, forstjóri Icepharma og formaður Félags atvinnurekenda.
Icepharma er stór innflytjandi lyfja og vara fyrir heilbrigðiskerfið. Hjá fyrirtækinu starfa um 80 manns en sögu þess má rekja allt til ársins 1919. Í dag samanstendur félagið af fjórum deildum, þar á meðal er það umboðsaðili Nike á Íslandi. Hún hefur gegnt stöðu forstjóra frá árinu 2005.
Í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins má finna ítarlegt viðtal við Margréti. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undir liðnum Tölublöð