Kaptio ehf. hefur fengið til liðs við sig nýja fjárfesta, en Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Kaskur ehf., fjárfestingafélag í eigu Inga Guðjónssonar, hafa fjárfest í fyrirtækinu fyrir 120 milljónir króna.

„Hingað til hefur fyrirtækið verið fjármagnað af stofnendum og tekjustofni sem aðallega hefur byggst á tekjum af ráðgjafastörfum við innleiðingu á Salesforce CRM. Fjármögnun þessi þar sem fagfjárfestar koma að uppbyggingu fyrirtækisins er liður í að byggja undir vöruþróun og vöxt í sölu á Kaptio Travel lausninni,“ segir í tilkynningu.

Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, segir að sjóðurinn hafi kynnst félaginu í Startup Reykjavík viðskiptahraðlinum þar sem frumkvöðlarnir Arnar Laufdal og Ragnar Fjölnisson voru með hugmynd undir nafninu Cloud Engineering.

„Okkur finnst þeir Arnar og Ragnar mynda sérlega öflugt teymi og gaman að sjá hversu langt þeir hafa þegar náð með Kaptio hugbúnaðinn. Að sama skapi er ánægjulegt að sjá tæknilausnir fyrir ferðaiðnað spretta upp hér á ferðamannalandinu Íslandi þar sem nú er orðinn til þokkalegur heimamarkaður. Okkar áherslur hjá NSA eru þó enn sem fyrr útflutningur og Kaptio hefur þegar náð árangri erlendis,“ segir Helga.

Kaptio Travel gerir ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum kleyft að halda utan um tilboðsferli og bókanir viðskiptavina sinnna og er jafnframt ætlað að auðvelda samskipti við endursöluaðila og birgja.