Höskuldur Ásgeirsson - Harpan
Höskuldur Ásgeirsson - Harpan
© BIG (VB MYND/BIG)
Frestur til að skila tilboði í byggingarreitinn vestan við Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsið í miðborg Reykjavíkur, rann út í gær. Um var að ræða opið söluferli af hálfu eiganda lóðarinnar, eignarhaldsfélagsins Situsar, sem kynnt var fyrir erlendum og innlendum fjárfestum. Tugir fyrirspurna komu frá áhugasömum fjárfestum en á endanum bárust sex formleg tilboð í byggingarréttinn á lóðinni. Þar af eru þrjú frá íslenskum aðilum og þrjú frá erlendum aðilum.

Í útboðsgögnunum var áskilið að viðkomandi hyggi á byggingu hótels á reitnum í samvinnu við alþjóðlega hótelkeðju. Gert er ráð fyrir að stærð hótelsins verði í hið minnsta 250 herbergi og að það verði 4 eða 5 stjörnur á alþjóðlegan mælikvarða. Á reitnum má byggja að hámarki 28.000 fermetra ofanjarðar og 2.000 fermetra  bílakjallara.

Fjórar til sex vikur í niðurstöðu

Yfirferð tilboða er nú þegar hafin. Í kjölfar þess verður efnt til nánari viðræðna við þá tilboðsgjafa sem vænlegastir þykja. Markmið stjórnenda Situsar er að hótelrekstur verði hafinn á reitnum í seinasta lagi  vorið 2015. Endanleg niðurstaða um hverjir byggi hótelið mun liggja fyrir innan fjögurra til sex vikna.

Markmið Situsar ehf. með útboðinu er að tryggja að við hlið Hörpu rísi hótel af þeim gæðum sem hæfir tónlistar- og ráðstefnuhúsinu og þannig að gott samspil verði á milli starfseminnar í þessum tveimur byggingum af því er fram kemur í fréttatilkynningu.