Pacific Investment Management Company LLC., einnig þekkt sem Pimco, var stofnað árið 1971 af Bill Gross, Jim Muzzy og Bill Podlich.

Fyrirtækið hefur í gegnum tíðina boðið upp á fjölmarga fjárfestingakosti og er nú þegar með um 1.500 milljarða dala í stýringu.

Einn af vinsælustu sjóðum félagsins hefur verið Pimco Total Return. Fjárfestar virðast þó flýja sjóðinn um þessar mundir, því þeir hafa selt úr sjóðnum fyrir um 1,6 milljarð dala.

Samkvæmt gögnum frá Morningstar, er Total Return sjóðurinn með allt að 75 milljarða dala í stýringu.