Mælt er með að fjárfestar haldi bréfum sínum í Össuri. Þetta kemur fram í uppfærðu verðmati IFS á hlutabréfum í fyrirtækinu eftir birtingu uppgjörs fyrir annan ársfjórðung í síðustu viku.

Sannvirði bréfa í Kauphöll Íslands er að mati IFS 170,6 krónur.

Marel kynnti einnig uppgjör fyrir annan ársfjórðung í síðustu viku og mælir IFS með kaupum með markgengið 154 eftir 9-12 mánuði.