Sannvirði hlutar í Össuri hf er um 265 krónur. Það er álíka og markaðsverð í viðskiptum fyrir helgina, segir í nýju virðistmati IFS greiningar. IFS gaf út kauptilmæli á bréfin fyrir þremur mánuðum og sagði þau vanmetin á báðum kauphöllunum þar sem þau eru skráð.

Þrátt fyrir ríflega 30% hækkun á bréfunum síðan í íslenskum krónum mælir IFS með að fjárfestar haldi þeim, enda ýmis merki um bata í rekstrinum.