Ætla má að fjárfestar hafi keypt íbúðarhúsnæði fyrir margra milljarða á árunum 2012 og 2013. Morgunblaðið segir frá þessu í dag og vísar í orð Ara Skúlasonar, sérfræðings hjá hagfræðideild Landsbankans, sem telur að „aukin eftirspurn fjárfesta stuðli að meiri verðhækkun en ella á vinsælum miðlægum svæðum“.

Fram kemur í Fjármálastöðugleika, riti Seðlabankans, að 12% fjárfestinga i fjárfestingaleið Seðlabankans hafi farið í fasteignir. Síðasta útboðsgengi var 210 krónur fyrir hverja evru en alls hefur Seðlabankinn keypt um 128 milljarða í alls 18 gjaldeyrisútboðum. Vilhjálmur Einarsson, fasteignasali hjá Eignaborg, telur fjárfesta sem kaupa íbúðir til útleigu halda uppi verði á íbúðum.