Nýsköpunarhreyfingin Norðanátt mun halda sína fyrstu fjárfestahátíð á Siglufiði á fimmtudaginn, 31. mars. Auk fjölda fagfjárfesta og fjárfestingasjóða hafa ráðherrarnir Katrín Jakobsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir boðað komu sína.
Á hátíðinni munu frumkvöðlar kynna verkefni sín sem snerta orkuskipti, hringrásarhagkerfið eða fullnýtingu auðlinda í takt við áherslur Norðanáttar; matur, orka, vatn. Viðburðurinn verður lokaður og eingöngu ætlaður fjárfestum sem horfa til landsbyggðarinnar sem ákjósanlegs fjárfestingakosts, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.
„Við viljum skapa vettvang á Norðurlandi með því að leiða saman frumkvöðla og fjárfesta og sýna gróskuna og öll tækifærin hér á Norðurlandi,“ segir í tilkynningu Norðanáttar.
Eftirfarandi sprotafyrirtæki verða með kynningu á fjárfestahátíðinni:
Hemp Pack: Þróun niðurbrjótanlegs lífplasts úr íslenskum iðnaðarhamp og örverum úr íslenskum jökulám.
Mýsköpun : Mývatns Spirulina: úr krafti eldfjallanna í ofurfæðu.
Alor: Sjálfbærar og umhverfisvænar álrafhlöður og -orkugeymslur.
Icelandic Eider: Hvernig skal umbylta útivistamarkaðnum.
Baðlón: Verkefnið gengur út á að byggja glæsilegt baðlón við sjávarmálið á Skagaströnd með einstöku útsýni yfir opið hafið.
Green fuel: Grænt vetni og ammoníak: Kolefnisfrítt eldsneyti úr vistvænni orku
Grænafl: Rafvæðing strandveiðibáta og tilraunir með frekari orkuskipti í minni fiskiskipum.
Ylur: Hátæknigróðurhús með áherslu á hringrásarhagkerfið.
Slippurinn: Sjávarlón er lausn sem bestar margbreytilegar aðstæður í þvotta- og blæðingarferli bolfisks í fiskiskipum.
Pelliscol : Náttúrulegar húðvörur úr íslensku kollageni.
Norðanátt er samstarfsverkefni stuðningsaðila í nýsköpunarumhverfinu á Norðurlandi og vinnur hópurinn í anda nýrrar klasastefnu, þvert á stofnanir samfélagsins og hraðar framþróun og nýsköpun. Að verkefninu koma Eimur, SSNE, SSNV, Nýsköpun í norðri og Hraðið auk samstarfs við stuðningsfyrirtækið RATA.
Norðanátt stendur fyrir viðburðum sem styðja við frumkvöðla með hugmyndir á ólíkum stigum. Fyrsti viðburðurinn var lausnamótið Hacking Norðurland sem haldið var í apríl 2021. Því næst fór af stað viðskiptahraðallinn Vaxtarrými síðasta haust þar sem átta teymi fengu stuðning til að vaxa í 8 vikur.