Nokkrir fjárfestar hafa lýst yfir áhuga sínum á verslanakeðjunni Blooming Marvellous sem er í eigu íslenska fjárfestingasjóðsins Kcaj. Þetta kemur fram í vefútgáfu The Sunday Times í dag.
Í greininni er fjallað um erfiðleika Kcaj sem rambar á barmi gjaldþrots og verður því að selja eignir. Meðal annarra eigna sjóðsins er tískukeðjan Cruise.
Meðal vörumerkja í eigu Kcaj eru skyrtuframleiðandinn Duchamp og leðurvöruframleiðandinn Aspinal í London. Einnig á sjóðurinn minniháttar eign í verslannakeðjunum Jones Bootmaker og Mountain Warehouse, sem selur skíði og útivisarvörur.
Kcaj var með fjárfestingagetu upp á um 60 milljónir punda og er af ýmsum kallaður Mini-Baugur segir í fréttinni.