Bílaframleiðandanum Ford hafa borist nokkur tilboð í Jagúar og Land Rover einingu sína, að því er talsmaður félagsins greindi frá í gær. Hann bætti því hins vegar við að málið væri aðeins á undirbúningsstigi og salan á einingunum væri ekki yfirvofandi. Í gær rann út frestur fyrir fyrirtæki til að leggja fram snemmbúinn tilboð.