Skuldir sjávarútvegsins hafa minnkað verulega frá árinu 2009 þegar þær náðu hámarki. Hafa skuldirnar lækkað á þessu tímabili úr 494 milljörðum króna í 333 milljarða. Kemur þetta fram í tölum, sem Deloitte vinnur árlega upp úr ársreikningum sjávarútvegsfyrirtækja. Verða niðurstöðurnar kynntar á fundi í dag. Sem hlutfall af EBITDA hagnaði hafa skuldir á sama tímabili farið úr 8,1% í 4,7%.

Í samantektinni kemur einnig fram að fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum hefur verið að aukast verulega í greininni síðustu ár, en á árunum 2009 til 2011 nam fjárfesting aðeins um 4-6 milljörðum króna árlega. Í fyrra námu fjárfestingar hins vegar 26 milljörðum króna og voru þær 27 milljarðar árið á undan.

Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum, sem hlutfall af EBITDA hagnaði voru í fyrra 36% og árið 2014 voru þær 44%. Til samanburðar má nefna að arðgreiðslur í fyrra námu 18% af EBITDA hagnaði og árið 2014 var hlutfallið 22%. Minnstar voru arðgreiðslurnar árið 2009, eða 1,5 milljarðar króna, eða um 2% af EBITDA hagnaði.

Útgerð 2
Útgerð 2

Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð .

Útgerð 3
Útgerð 3