,,Miðað við áætlanir um ný orkufrek verkefni þá er ljóst að það þarf að eiga sér stað mikil fjárfesting í byggingu virkjanna á næstu misserum og árum. Við erum að áætla að sú fjárfesting geti numið allt að 300 milljörðum króna í jarðhitanum.  Stærstu eigendur íslenskra orkufyrirtækja eru opinberir aðilar og við núverandi aðstæður í íslensku efnahagslífi ályktum við sem svo að hluti þess fjármagns þurfi að koma frá utanaðkomandi fjárfestum,“ segir Árni Magnússon, forstöðumaður Orkuteymis Íslandsbanka, í skriflegu svari til Viðskiptablaðsins.

Íslandsbanki kynnti í morgun nýja skýrslu um orkumarkaðinn á Íslandi á fundi með fagaðilum í íslenskum jarðhitaiðnaði  á Kirkjusandi.  Í skýrslunni er fjallað almennt um orkumarkaðinn á Íslandi, stefnu stjórnvalda og lagaramma og þá fjárfestingaþörf sem fyrir hendi er í greininni.

Í skýrslunni kemur m.a. fram samkvæmt tilkynningu frá Íslandsbanka að áliðnaður er langstærsti orkunotandinn á Íslandi og nýtir meira en 75% af allri raforku sem framleidd er á Íslandi. Aðrar iðngreinar, t.d. kísiljárniðnaður nota um 11% orkunnar en raforkunotkun til heimilisnota er einungis um 5% af heildar raforkunotkun á landinu.

Um 85% af allri jarðhitaorku á Íslandi fara í raforkuframleiðslu og húshitun en um 90% af öllum heimilum landsins eru hituð upp með jarðvarma.

Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar er jarðhitageirinn á Íslandi mjög virkur og fjöldi fyrirtækja hafa rutt sér til rúms á sviðið þjónustu, ráðgjafar og borunar. Þá eru opinberir aðilar mjög mikilvægir þátttakendur í íslenskum jarðhitaiðnaði.

Ísland er mjög virkur þátttakandi í alþjóðlegum rannsóknum og þróun og styður þjóðir um allan heim við þróun jarðvarmanýtingar.  Íslensk fyrirtæki eru ennfremur virk á alþjóðlegum vettvangi þegar kemur að því að selja þjónustu sína og þekkingu og eru í mörgum tilfellum leiðandi á sínu sviði.

Fjárhagsleg áhætta hindrun

„Mörg fyrirtæki í orkufrekum iðnaði líta til þess að hefja starfsemi á Íslandi. Á sama tíma eru veitufyrirtæki að leggja drög að stækkunum og nýjum virkjunum. Stjórnvöld og stofnanir hafa verið í  lykilhlutverki í rannsóknum á jarðhita. Fjárhagsleg áhætta við forrannsóknir og þróun jarðhitaorku hefur verið hindrun í vegi þess að fá fjármagn frá einkaaðilum í slík verkefni. Miðað við þau verkefni sem eru  pípunum, þar sem gert er ráð fyrir um 300 milljarða fjárfestingu í geiranum, er ljóst að þörf er að á fjármagni frá utanaðkomandi aðilum utan núverandi eigendahóps til að þróa orkuverkefni áfram á Íslandi," segir í kynningu frá Íslandsbanka.