Fjárfestingafélögin, FL Group, Atorka og Exista, tapa samanlagt tæplega 49 milljörðum íslenskra króna á fyrsta fjórðungi þessa árs, samkvæmt meðalspá greiningardeilda bankanna.

Á sama tíma fyrir ári nam hagnaður Atorku þremur milljörðum króna, Existu 641 milljón evra og FL Group 15 milljörðum króna.