Í ályktun Samtaka iðnaðarins eru áform stjórnvalda um að leggja á kolefnisskatt harðlega gagnrýnd og þau hvött til þess að draga áform um kolefnisskatt til baka hið fyrsta til að lágmarka það tjón sem þegar er orðið. Samtökin segja að kolefnisskattur af þessu tagi, sem eigi sér enga hliðstæðu í nágrannalöndunum, skerði verulega samkeppnishæfni íslensks iðnaðar. Líkur á frekari uppbyggingu iðnaðar á Íslandi sem háður sé notkun kolefna minnki stórkostlega sem og geta Íslendinga til að nýta umhverfisvænar orkuauðlindir.

"Fjárfestingaáform margra fyrirtækja eru sett í uppnám og tilverugrunni starfandi fyrirtækja er ógnað. Í húfi eru þúsundir starfa um allt land. Kolefnisskattur brýtur gróflega í bága við fjárfestingasamninga margra fyrirtækja og verði af áformunum eru miklar líkur á að stjórnvöld séu bótaskyld. Komi til slíkra málaferla dregur það enn frekar undan trúverðugleika íslenskra stjórnvalda. Kolefnisskattur á íslensk fyrirtæki mun tæpast draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Starfsemin flyst einfaldlega úr landi og veldur jafnvel enn meiri útblæstri þar sem óendurnýjanlegir orkugjafar eru nýttir. Kolefnisskattur grefur undan ETS-viðskiptakerfinu um útblástursheimildir sem ætlað er að draga úr losun án þess að grafa undan samkeppnishæfni iðnaðarins," segir í ályktuninni.