Fjárfestingararmur Kaupþings banka íhugar að gera kauptilboð í ferðaeiningu breska veitingaþjónustufyrirtækisins Compass Group Plc, segir í frétt breska dagblaðsins The Daily Telegraph.

Compass tilkynnti að einingin, Select Service Partners, væri í sölu í September. Búist er við að einingin sé til sölu fyrir rúmlega einn milljarð punda (108 milljarðar íslenskra króna), samkvæmt fréttinni.

Þar kemur fram að alþjóðlegir fjárfestingasjóðir hafi einnig áhuga á einingunni. Ekki náðist í talsmenn Kaupþings banka.