Fjárfestingafélagið Fylkir ehf. hefur keypt hlutabréf í Samherja hf. af Fjárfestingarfélaginu Firði ehf. með yfirtöku þriggja kaupsamninga sem Fjárfestingarfélagið Fjörður ehf. gerði við Burðarás hf., Lífeyrissjóði Bankastræti 7 og Kaupfélag Eyfirðinga hf. Verð hluta í viðskiptunum er 12,1. Heildarnafnverð er 377.913.222.

Fjárfestingafélagið Fylkir ehf. er í eigu Þorsteins Más Baldvinssonar, Kristjáns Vilhelmssonar, F-15 sf., Blika ehf., Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og Fjárfestingafélagsins Fjarðar ehf.

Fjárfestingafélagið Fylkir ehf. mun standa að væntanlegu yfirtökutilboði í Samherja hf. sbr. tilkynningu sem birtist á vef Kauphallar Íslands þann 30. mars. sl.