Sjóvá, Íslandsbanki og Milestone hafa stofnað Fjárfestingarfélagið Mátt ehf. Áform aðila um stofnun fjárfestingafélags voru áður kynnt í tilkynningu til Kauphallar 19. apríl 2005, þegar tilkynnt var um sölu Íslandsbanka á 66,6% hlut í Sjóvá til eignarhaldsfélagsins Þáttar. Eigið fé nemur kr. 11.350 milljónum og er skipting eignarhluta þannig að Sjóvá á 49,7%, Íslandsbanki 34,4% og Milestone á 15,9%.

Markmiðið með rekstri félagsins er að setja á fót öflugt fjárfestingarfélag sem getur tekist á við stærri verkefni og þá jafnan með umtalsverðan hlut. Hinu nýja fjárfestingarfélagi er ætlað að auka verðmæti fyrir eigendur sína með fjárfestingum í skráðum og óskráðum hlutabréfum, bæði í eigin verkefnum og í samstarfi við aðra fjárfesta.

Friðjón Rúnar Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins og mun stýra daglegum rekstri ásamt því að hafa yfirumsjón með fjárfestingum félagsins.