Fjárfestingarfélagið Vending hefur keypt 158.158.429 hluti í Alfesca á genginu 4,12, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Ólafur Ólafsson, stjórnarmaður í Fjárfestingafélaginu Vendingu er jafnframt stjórnarformaður Alfesca.

Guðmundur Hjaltason er framkvæmdastjóri Fjárfestingafélagsins Vendingar og stjórnarmaður í Alfesca.

Hlutur fjárhagslegs tengdra aðila Ólafs Ólafssonar eftir viðskiptin er 2.230.724.395.

Hlutur fjárhagslegs tengdra aðila Guðmundar Hjaltasonar eftir viðskiptin er 2.006.265.305.

Andvirði kaupanna er 651,6 milljónir króna.