„Sterkur innri vöxtur einkenndi annan ársfjórðung, en framboðsaukning í millilandaflugi félagsins nam 25% á milli ára. Farþegaaukning á sama tíma var 27%. Velta Loftleiða jókst um 28% og Flugfélag Íslands jók framboð sitt til Grænlands og nam farþegaaukningin á tímabilinu 14%. Þá opnaði samstæðan nýtt hótel á Akureyri," segir Björgólfur Jóhannson forstjóri Icelandair Group um uppgjör annars ársfjórðungs Icelandair Group. Hagnaður félagsins eftir skatt nam 400 milljónum króna á tímabilinu og hagnaður félagsins fyrir skatta og fjármagnsliði (EBITDA) nam 2,1 milljarði króna.

"Hátt olíuverð, eldgos og aðgerðir vegna kjaradeilna voru áskoranir sem við þurftum að takast á við. Kostnaður og tekjutap vegna eldgossins er talið nema um 300 milljónum króna í fjórðungnum og yfirvinnubann flugmanna kostaði félagið sambærilega fjárhæð. Aðgerðir þeirra komu á versta tíma þar sem þjálfun nýrra flugmanna hafði seinkað vegna eldgossins. Olíuverð var að meðaltali 47% hærra en á sama tíma í fyrra og kostnaðarhækkun vegna þess er um 1,7 milljarðar króna. Í ljósi þessa erum við mjög sátt við afkomu félagsins og ljóst að undirliggjandi rekstur er traustur.

Fjárhagsleg staða félagsins er sterk. Eiginfjárhlutfall er 29% og handbært fé og markaðsverðbréf í lok júní námu um 18,4 milljörðum króna. Bókunar- og verkefnastaða fyrir komandi mánuði er góð og er EBITDA spá fyrir árið í heild óbreytt eða 9,5 milljarðar króna," segir Björgólfur Jóhannsson.