Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody's hefur í dag staðfest A-2 og P-1 lánshæfismatseinkunnir Landsbankans. Samhliða þessu hefur Moody's breytt horfum á lánshæfismatseinkunn á fjárhagslegum styrkleika, sem er í dag C, úr stöðugum í neikvæðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Fréttatilkynning frá Landsbankanum er væntanlega innan tíðar.