Ungir sjálfstæðismenn hafa sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er harðlega þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að auka fjárveitingar ríkisins til Ríkisútvarpsions (RÚV) á næsta ári.

Segir í ályktuninni að með aukafjárveitingunni, sem komi til vegna bættrar stöðu ríkissjóðs, muni framlög til RÚV hækka um rúmar 300 milljónir króna frá yfirstandandi ári. Árið 2013 hafi útgjöld til RÚV verið 3,19 milljarðar króna, 3,38 milljarðar árið 2014 og til standi að framlögin nemi 3,68 milljörðum árið 2015. Á tveimur árum hækki framlagið til RÚV því um 485 milljónir króna, sem sé duglega umfram hækkun verðlags.

Ungir sjálfstæðismenn segja fjárhagsvanda RÚV ekki leystan með meira skattfé, heldur þurfi stjórnendur að sníða stofnuninni stakk eftir vexti og draga verulega úr rekstrarkostnaði hennar, meðal annars með því að selja útvarpshúsið við Efstaleiti sem sé óþarflega stórt og dýrt í rekstri. Í heild hafi ríkisfjölmiðillinn haft rúmar 30 þúsund milljónir í heildartekjur en af einhverri ástæðu hafi reksturinn skilað milljarða tapi síðustu 10 ár, þrátt fyrir ríka forgjöf.

Að lokum segir í ályktuninni:

„Ungir sjálfstæðismenn ítreka jafnframt þá skoðun að ríkisvaldið eigi ekki að standa í fjölmiðlarekstri eins og öðrum þeim rekstri sem er betur kominn í höndum einkaaðila. Þá vilja ungir sjálfstæðismenn minna ráðherra og þingmenn Sjálfstæðisflokksins á samþykkt síðasta landsfundar þar sem sagði meðal annars:

„Rekstur ríkisins á fjölmiðlum má ekki hamla frjálsri samkeppni og raska rekstrargrundvelli annarra fjölmiðla. Landsfundur leggur til að þörf samfélagsins fyrir ríkisfjölmiðil verði endurskilgreind og Ríkisútvarpið ohf. verði lagt niður í núverandi mynd ef ástæða þykir til. Skilgreina þarf hvaða menningarfræðslu og dagskrárgerð á að styrkja opinberlega og tryggja fjármagn til þeirra verkefna.“