Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2016 hefur verið lagt fram á Alþingi. Gert er ráð fyrir 15,3 milljarða króna afgangi og er þetta þriðja árið í röð sem frumvarp til fjárlaga er hallalaust. Afgangur af frumjöfnuði verður 73 milljarðar króna samkvæmt frumvarpinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Kaupmáttur hefur aukist hratt, með lítilli verðbólgu, hækkandi launum, niðurfærslu verðtryggðra húsnæðisskulda og lækkun skatta og gjalda. Áfram verður haldið á þessari braut. Afnám tolla, lækkun tekjuskatts einstaklinga og niðurgreiðsla skuldaásamt vaxandi rekstrarafgangi er meðal þess sem hæst ber,“ segir í tilkynningunni.

Einnig er gert ráð fyrir 2,6 milljarða króna framlagi til húsnæðismála og minni skattbyrði leigutekna til að hvetja til langtímaleigu. Þá hækka framlög til heilbrigðismála, menntamála og almannatrygginga.

Tollar afnumdir

„Breytingar á skattkerfinu á árinu 2016 miða að því að bæta enn frekar lífskjör á Íslandi og auka um leið skilvirkni kerfisins. Stærsta breytingin snýr að tekjuskatti einstaklinga og afnámi tolla á fatnað og skó. Stefnt er að því að tollar á fatnað og skó verði afnumdir við næstu áramót. Þá er jafnframt áformað að allir aðrir tollar en þeir sem leggjast á tiltekin matvæli verði lagðir af 1. janúar 2017,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að niðurfelling tolla hafi umtalsverð áhrif á smásöluverð og ætla megi að vísitala neysluverðs geti lækkað um allt að 0,5% á árinu 2016 og nái 1%  lækkun árið 2017. Ráðstöfunartekjur heimila hækki með þessu en aðgerðinni sé jafnframt ætla að stuðla að að samkeppnishæfari verslun á Íslandi. Alls lækki bein álagning af hálfu ríkisins á innfluttar vörur um 4,4 milljarða króna.

Hægt er að skoða frumvarpið í heild sinni hér.