Mikil tíðindi eru við afgreiðslu fjárlaga á  Alþingi þar sem ekki næst samstaða innan ríkisstjórnarinnar um stuðning við fjárlagafrumvarpið. Þrír þingmenn Vinstri grænna, þau Atli Gíslason, Lilja Mósesdóttir og Ásmundur Einar Daðason styðja ekki fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Lýsti Lilja þessu yfir á Alþingi fyrir stundu við lokaatkvæðagreiðslu um frumvarpið. Atkvæðagreiðsla stendur nú yfir.